10.9.2010 | 18:49
Má-é-sjá
Hmmmm...
Seinasta bloggfærslan mín var "21.12.2008"... Og hún var hræðileg! Hver sem er fundinn lesandi fyrir neðan þessa línu l verður SKOTINN og/eða PINTAÐUR í nafni Þórs almáttuga. l ˅
----------------------------------------------------------------------
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.12.2008 | 02:20
Lífið mitt er algjör Klisja... Er þetta skrifað rétt?
Oddur er að blogga smá svo að ég hélt að ég ætti líka:
Klisja, Chliché eða Tugga(enn og aftur, takk fyrir Tungutorg) hvernig sem þú villt skrifa þetta þá var ég að fatta að lífið mitt er pretty much eins bíómynda klisja. Ég ætla að byrja að skrifa um nákvæmlega það sem að ég gerði, eftir að ég kom heim, ef þið nennið ekki að lesa farið þá á næsta greinarskil eftir þetta:
--------------------------------------------------------------------------------------------------
Ég kom heim kl. 1 um nótt, hugsandi um bíómyndina sem að ég var nýbúinn að vera á og storma inní litla herbergið mitt í kjallaranum sem að ég kalla heimili. Rekkst í hurðinna og kem með einn standard "Damn it!" og reyni að koma mér framhjá stólinum á meðann að ég klifra yfir ruslatunnuna og held mér frá því að falla á rúmið sem er 60% af herberginu. Ég hendi frá mér tvemur fjarstýringum og einum tölvuleik sem að ég hafði fengið í láni og klifra yfir ruslið aftur. Ég fór á bloggið hans Odds og horfi á stuttmyndina hans og les bloggið, hann talar um Jólaþvott viku fyrir jólin. Ég horfi á hebergið og hugsa "Þetta er fínt", ætla að vera rosa fyndinn og taka myndir af herberginu og sýna öllum hvað ég tók vel til, en ég finn ekki gráa snúruskrattann sem ég þarf að tengja með. Ég leggst á gólfið og leita undir skrifborðinu... Fullt af gráum og svörtum snúrum, en engar eru sá sem ég leita af. Ég skríð þá undir rúmið... Hvað fann ég ekki, ég fann svartann (og mjög bragðgóðann) brjóstsyk... brjóstsykur... hmmm... ekki viss hvort orð ég ætti að nota en ég fann gamlar kók flöskur, ég fann Force 3D Pro Joystick (án gríns í pakkanum og allt samann... ekkert grín), brettaskóna mína, meira að seigja Killing Mr. Griffin eftir Lois Duncan. "Lá við að ég myndi finna tíndu borgina Atlantis" hugsaði ég með mér en ég fann enga snúru... Svo ég fór á bloggið og skrifaði þetta.
----------------------------------------------------------------------------------------------------
Þú ert mjög latur/löt! En ef þú last þetta gott hjá þér :D.
-----------------------------------------------------------------------------------------------------
Ég fann snúruna!!!
hérna eru myndir af herberginu mínu :D
Nú get ég verið ofsa fyndinn á blogginu hans Odds Muhahahaha
enda með geðveiku lagi:
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.9.2008 | 01:37
Heilaþvottur
Ég var að fatta doldið... Það eru engir góðir gaurar né vondir gaurar. Þetta er allt saman bara hópþrýstingur og persónulegar skoðanir áhrifaríka manna. Allt sem hefur gerst gerðist útaf því að einn gaur sagði "Þetta er vont" nokkru sinnum og fékk fólk til að fylgja sér þangað til að annaðhvort þeir eða hluturinn er útrímdur. Auðvitað er tækni við þetta og þetta er allt sálfræðilegt en ef fólk kann að nota hópþrýsting og stemmingu þá getur það gert allt.
Hérna eru nokkur dæmi um heilaþvott frá fólki sem nýtir sér þessa sálfræðilegu tækni:
Bretar (Cap' Kitchener) og Bandaríkjin (Uncle Sam)
Nasistar og Bandaríkjin
Forsetar og Yu-Gi-Oh
Hitler og Kári
Auðvitað fann ég ekki jafn góð dæmi eins og Jóhannes fann í tíma en ef þið kíkið á þessar myndir þá er þetta allt eins. Það er sagt að ef þú ferð með einhvað yfir í heilanum þínum 14 sinnum eða oftar áttu að geta munað það mjög lengi, ef maður seigir "þetta er vont" mörgu sinnum við barnið sitt þá lærir það að það sé vont. Rétt eins og ef þjóðstjórnendur seigja fólkinu að einhvað sé vont nógu mikið byrjar fólk að hata hlutinn. Gott dæmi: Oddur er búinn að seigja að hann hafi hot rass 25649 sinnum up to count og öllum finnst það núna.
Þetta er bara heilaþvottur í minna magni og ef Arngrímur Frændi byrjar að vilja þig í Íslensku Landhelgisgæsluna, hugsið ykkur um hvort það sé rétt eða rangt.
takk fyrir
Ingvar H Árnason
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
24.8.2008 | 09:19
Cyanide and Hapiness style comic sem að ég gerði
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
22.8.2008 | 16:12
Stemming!
Úff... Vá... Þetta var mest spennandi leikur sem að ég hef horft á, vá... Plús ég, Oddur, Bjarki M og Eiríkur sáumst í beinni :D! VIÐ KOMUMST Í ÚRSLITIN!!! Jafnvel þótt að dómararnir hafi verið total assholes við okkur allt mótið. Ég er ekkert smá hás eftir þetta, við öskruðum svo hátt. Arnór og Bjarki þið vitið ekki afhverju þið voruð að missa!
Allaveganna Ísland rules! og Kommentið nýju söguna mína! Ég þarf fleiri svör til að halda áfram með hana...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
18.8.2008 | 04:09
Blóð Morðingjana
...Þú ert leigumorðingi þessa nótt og ert á leiðinni að þínu næsta fornalambi. Það er um 2 leitið, tunglið er fullt og stjörnurnar eru bjartar og fallegar eins og guð hafi kveikt á milljón litlum kértum. Þú gengur að veitingarstaðnum sem fórnalambið þitt bíður eftir manni að nafni Emil Jensen, Norskur málaliði (mercenary) sem þú vannst með í skipilögðu glæpum í 10 ár, en svo hættu þið eftir að Rússneska Mafían hafði næstum því gómað ykkur þegar að þið voruð að ræna einum af bönkunum þeirra. Emil átti að tala við fórnarlambið og halda því á sínum stað þangað til að þú dræpir það. Þetta er í Frakklandi þannig að fórnarlambið situr við borð úti heldur en inni og gerir því kleift að skjóta hann með sniper riffli en það fer eftir því hvernig þú villt drepa hann...
1. Ferðu uppá byggingu fyrir framan veitingarstaðinn og notar Sniper riffilinn sem að drepur fórnalambið strax en eftir situr Emil í sætinu á móti og þarf einhvernmeiginn að koma sér í burt.
2. Ferðu inn á bakvið veitingarstaðinn og eitrar matinn hans og þú og Emil labbið í burtu ekkert mál, en það er séns að hann komist á spítalann og læknarnir nái að bjarga honum.
3. Ferðu á bílastæðið og lætur sprengju í bílinn hans á meðann Emil spjallar við greyið fórnalambið, sem þýðir að þið komist í burtu en sprenginn á eftir að byggja svakalegann "hita" (eftir að koma í fréttirnar, leynilögregglann telur ykkur terrorista ect.).
...Eftir að þið drápuð Fórnalambið fljúgið þið strax til Danmerkur og ætlið að sækja í peninginn ykkar frá manni sem kallar sig "The Fox" eða Refinn. Refurinn náði að næla ykkur úr felum til að gera meira en fínann samning... Hann myndi falsa dauða ykkar fyrir Mafíunni og gefa ykkur verðlauna peninginn fyrir það bara fyrir þetta eina morð. Þið hittið Refinn undir brú um 12 leitið um nótt og Emil spyr "The target is dead, have you done your part?", þið sáuð aldrei framann í Refinn, einhvernmeiginn náði hann alltaf að hylja andlitið sitt í skugga. "Yes, and here's the money" Refurinn talaði með Breskri og skrámri rödd, eins og hann hefði verið búinn að reykja í mörg ár. Þið takið skjalatösku frá Refinum og opnið hana, "200.000 Euro's, fully laundered by the Mafia" sagði Refurinn "Very good" svaraði Emil, svo labbið þið í burtu og keyrið í áttina að Hóteli til að panta flugmiða heim. Emil sagði þér frá fjölskyldunni sem að hann ætti heima í Noregi. Hann var að fara að eignast barn og ætlaði að hætta glæpum, fyrst að ykkur var gefið svona gyllt tækifæri. Þú ert að keyra og sérð að ofsa hraður bíll er að nálgast ykkur. Þú varar Emil við og hann grípur í byssu bara til öryggis. Bíllinn klessir aftann í bílinn ykkar og þið gefið í hann en hinn bíllin er of hraður. Emil byrjar að skjóta á hinn bílinn og þeir byrja að skjóta á móti, þeir skjóta í dekkið og þú missir stjórn og klessir í ljósastaur. Þú vaknar 10 mínótum seinna og tveir Danar eru að draga þig úr bílnum... Svo tekuru eftir að Emil er dáinn...
1. Ferðu á eftir þeim með skambyssuna hans Emils til að hefna dauða hans sjálfur. Þú sérð að þeir skrönsuðu í hverri beygju sem skyldi eftir svört för þannig að þú ættir að geta ellt þá.
2. Finniru annann gamlann félaga að nafni Yuri Petrov. Rússneskur málaliði sem gæti hjálpað þér að hefna dauða Emils.
3. Ferðu með taxa á hótel og einfaldlega sleppir þessu og flýgur síðann heim til Íslands nokkrum dögum seinna. Þú ert frjáls en átt eftir að sjá eftir því að hafa klesst á staurinn allt þitt líf eftir það.
----------------------------------------------------------------
Ef ykkur fannst þetta góð saga þá skal ég halda henni áfram með svörunum ykkar
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
13.8.2008 | 23:30
VG Cats
nokkur uppáhalds comic frá http://www.vgcats.com/archive/
Síðan eru fleiri uppáhöld en Comicin eru svo stór að ég stoppa bara hérna
Svo fann ég líka Animated þátt með þeim (ekki fan-made) en Varúð raddirnar gætu eyðilagt fyrir ykkur: http://www.sheezyart.com/view/626574/
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
11.8.2008 | 19:44
Heimsyfirráð
Ef þið mynduð geta tekið yfir heiminn: hvernig myndu þið gera það, hvað mundu þið gera til þess að gera það, hvað mundu þið gera þegar að þið væruð búin að gera það og hvað myndu þið gera eftir það. Auðvitað meigið þið bæta fleiri spurnignum við þetta ef þið viljið og endilega gerið heilar ritgerðir inní commentunum...
Ég myndi kaupa eyju og hafa hana sem aðalbækistöðvarnar mínar og taka yfir heiminn Doctor Evil style. In my conquest I would only kill my enemies ég myndi ekki gera sömu mistök og Hitler og drepa saklaust fólk, heldur nota það í herinn minn. Ég myndi gera allt saman til að komast á toppinn fyrst að ég væri byrjaður. Þegar að ég væri kominn með heiminn þá myndi ég útríma þessum þremur hlutum: Trúarbrögð, Stríð og Heimsku! Með enga trú þá getur fólk byrjað að hugsa skýrt ánþess að vera hrætt um að enda í helvíti að eilífu, þar með engin asnaleg stríð á milli trúa. Ef ég skyldi búa til eina false trú þá myndi fólk byrja að verða ósammála og þar með endum við aftur á byrjunarreit. Ég myndi örugglega bara gera nýtt reglukerfi með nokkrar einfaldar reglur eins og boðorðin 10. Ég myndi líka þróa skóla- og heilsukerfin eins mikið og mögulega ég myndi fókusa á hungrið í Afríku ofl.
Svo basicly ég myndi taka yfir heiminn brutally og svo laga hann alveg í max, ekki ólígt foreldra að skamma þrjóska barnið sitt til að kenna því að haga sér.
plís lív a komment abát há jú vudd dú itt :D
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
5.8.2008 | 17:47
Metal Rear Solid
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.7.2008 | 03:37
Ég heyri í sorg
Ég var að fara niður í herbergið mitt þegar að ég heyrði í einhverju á stigaganginum...
Það var kona að gráta. Það kom frá íbúðinni hennar Svövu en þetta hljómaði alls ekki eins og hún.
Konan grét svaka mikið en ég heyrði valla hvað hún sagði... Ég heyrði bara "Ég var að drekka" og mörgu sinnum "Mér líður illa" og nokktu sinnum "Mér líður svo illa"
Nú líður mér hræðilega... bring in personality no. 2
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)